Laufskálaréttir!!!!

Kæru Þjóðbrókarfélagar og þjóðfræðinemar. Við hyggjumst fara í menningarreysu norður í land þann 27.september til að vera viðstödd stóðréttir þar í sveit. Þennan ágæta laugardagsmorgun munum við leggja af stað klukka 8 til að vera mætt tímanlega. Eftir réttirnar er okkur boðið í einkar þjóðlega kjötsúpu að Hólum og svo munum við skunda í Hólakirkju og fá líflega og fræðandi leiðsögn frá vígslubiskupi. Að því loknu hafa ferðamálafræðinemar á Hólum ákveðið að bjóða okkur í partý enda erum við alræmd partýdýr. Því næst verður ekið á réttarball (3000.- miðinn) í Reiðhöllinni á Sauðarkróki og slett ærlega úr klaufunum ef einhverjir hafa ekki enn fengið útrás í partýinu. Þegar gleðinni líkur í Reiðhöllinni förum við á Steinstaði þar sem við munum gista (Sú gisting kostar 2.5oo.- á manninn og mun Þjóðbrók niðurgreiða 500.- fyrir sína félaga). Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig sunnudeginum mun verða varið og eru uppástungur vel þegnar en við munum þó halda heim á leið að lokum.
Þeir sem eru ólmir í að lyfta sér upp og upplifa ævintýralega helgi í sveitasælunni með góðu fólki eru beðnir um að skrá sig í “kommentakerfið” hér á síðunni. Einnig ef þið sjáið ykkur fært að fara á eigin bíl, því við ætlum á einkbílum (engir langferðarbílar), er gott að taka það fram. En farþegar í hverjum bíl fyrir sig munu deila bensínkostnaði á milli sín.
Skráningarfrestur er til miðnættis á mánudaginn næstkomandi eða þann 15.september. Ekki hika við að hafa samband ef upp koma einhverjar spurningar.
Bestu kveðjur, Þjóðbrækurnar.

24 Responses to “Laufskálaréttir!!!!”

  1. Ég mæti að sjálfsögðu.

    Það er líka rétt að taka það fram að við eigum bara 20 gistipláss. Fyrstur kemur fyrstur fær.

  2. ÉG VIL KOMA MEÐ!!!
    þið meigið líka gjarnan taka það fram hvort þið viljið morgunmat á sunnudeginum á Steinstöðum. hann kostar 950.-
    ég á engan bíl…en er þó komin með far ;O)

  3. Jess…ég mæti en þar sem maðurinn minn er að fara að spila í brúðkaupi fyrir norðan þessa sömu helgi þá þurfum við að fara á föstudeginum….og auðvitað með stelpurnar okkar með….svo ég hitti ykkur bara á Hólum…við réttina;) ég þarf því ekki gistingu né far…ok

  4. Hæ hæ ég vil koma með og get hugsanlega komið á bíl !!

  5. Hæ hæ. Ég kem með ef ég fæ far hjá einhverjum.

  6. Ég kem, það er samt ekki alveg ákveðið hvort ég fari á föstudeginum, eða með ykkur á laugard.

  7. jæja gullin mín, nú er ekki seinna vænna en að fara að skrá sig í menningarreisu vora………

  8. Fyrir hönd Rögnu tilkynni ég hér með að hún ætlar að mæta:)

  9. Ég ætla með og verð á bíl, reikna með Margréti Sigvaldad. og Nönnu með mér en bíllinn er stór þannig að það er pláss fyrir amk. tvo til viðbótar.

  10. hér er bara allt að gerast… Íris A. og Sigríður Ása ætla með í réttir. Sigga Ása getur hugsanlega verið á bíl :)

  11. ég og gunný komum.

  12. Ég vil endilega koma. Get ekki verið á bíl þannig að ég óska eftir fari….:)
    Móeiður

  13. Ég vil endilega koma líka, er ekki á bíl.
    Margrét Gísla

  14. Ég vil koma með og ég er á bíl þannig að það er hægt að raða í minn bíl.

  15. Ég vil koma með en mig vantar far.

  16. Ég kemst því miður ekki með….langar alveg rosalega en stend í miðjum flutningum þessa helgina. Skemmtið ykkur alveg rosalega vel og takið alveg fullt af myndum. Ég var neblega að skoða myndasíðuna og við höfum greinilega ekki verið nógu dugleg við að taka myndir síðasta skóla ár miðað við árið þar á undan;)

  17. Sælir Þjóðfræðinemar

    Okkur hlakkar til að fá ykkur hingað til okkar í heimsókn heim að Hólum.

    En leikur mér sú forvitni á að vita hve mörg þið komið í súpu?
    Einnig væri sterkur leikur að vita hverjir koma í eitt af hinu frægu Hólapartýum og hvort þið þurfið rútu á ballið.

    ef einhver vil/l vera svo væn/n að senda mér slíkar upplýsinga á tölvupósti ernaniels@gmail.com

    en og aftur við hlökkum til að sjá ykkur

  18. ég kem með.. og er líklega komin með far

  19. þetta er frábært, við erum komnar 15 í gistingu og 18 manns sem förum allt í allt :) smelli fljótleg inn fundarboði (v. ferðar) og e-h. meira um ferðatilhögun.

    Erna, við komum semsagt 18 hungruð stikki til þín í kjötsúpu :OÞ

    kv. Margrét.

  20. Hæ…ég væri til í að koma með….ef það er ekki of seint, ég er komin með far

    kv. Ólöf

  21. Hæ. Ég kemst því miður ekki með, þannig að strikið mig af listanum. Langar samt ferlega að koma með:/ En góða skemmtun:)

  22. Ég ætla að koma og bara spurning hvort ég kem á bíl eða hvað.

  23. Er ég of sein að skrá mig?

  24. nei nei, ég var búin að setja þig inn Sigríður Ása :) en auglýsi hér með eftir einhverjum í staðinn fyrir Hrafnhildi…

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra