Haustþing Þjóðfræðistofu
“Þjóðfræðistofa býður þjóðfræðinema sérstaklega velkomna á Haustþing,
laugardaginn 13. september kl. 15:00, Höfðagötu 3 á Hólmavík, þar sem
fræðasetrið verður kynnt fyrir áhugasömum. Þá mun Cliona O’Carroll flytja
erindi um gerð þjóðfræðilegra útvarpsþátta en Cliona er lektor við
Háskólann í Cork á Írlandi og situr í fagráði Þjóðfræðistofu.
Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt er á
Ströndum og sinnir rannsóknum og miðlun á landsvísu. Fyrirhugað er að hún
verði sjálfbær vinnustaður háskólamenntaðra starfsmanna sem hafa menntun í
íslenskum fræðum, þjóðfræði, sagnfræði og miðlun menningarsögu. Á
Þjóðfræðistofu er unnið að rannsóknar- og miðlunarverkefnum um íslenska
þjóðfræði og margvíslegum samvinnuverkefnum á sviði þjóðfræði, menningar
og lista. Á meðal yfirstandandi verkefna eru rannsóknir á ímynd
Íslendinga, matarmenningu og gerð heimildamyndar um slóðir Gísla sögu
Súrssonar. Jafnframt kemur Þjóðfræðistofa að upplýsingamiðstöð um íslenska
þjóðtrú og þjóðfræði, þar sem veittar eru upplýsingar og fyrirspurnum
svarað frá fjölmiðlum, listamönnum, stofnunum og einstaklingum, bæði hér á
landi og erlendis frá.
Erindi Cliona O’Carroll nefnist “How’s it going, boy?”: community
ethnography for radio in Cork, Ireland. Þar fjallar hún um hið svokallaða
Northside Folklore Project sem er samfélagslegt verkefni þar sem safnað
var frásögnum fólks í Cork á Írlandi. Gerð var þjóðfræðileg
útvarpsþáttaröð sem kannaði borgina frá sjónarhóli íbúanna og
endurspeglaði þannig fjölbreyttan þjóðernisbakgrunn og persónulegar
upplifanir fjölmargra Corkverja. Verkefnið vakti upp margar spurningar
um samspil þjóðfræði og fjölmiðlunar, fólksflutninga og staðarvitund og
hvaða hagnýtu möguleikar kunni að felast í samfélagslegum
þjóðfræðiverkefnum. Nánar um verkefnið á http://www.ucc.ie/research/nfp/.
Erindið verður flutt á ensku.
Allar frekari upplýsingar gefur Kristinn Schram – netfang
kristinn@akademia.is . “
Discussion Area - Leave a Comment