Nemendafundur/nýnemakvöld
Valdimar og Terry ætla að halda nemendafund miðvikudaginn 10 september kl. 17 í stofu
101 í Odda. Á fundinn mætir kennari frá Cork, Dr Cliona Ó Carroll, sem ætlar að segja
frá Erasmus námi í Cork. Auk þess ætlar Valdimar að segja frá MA námi í Þjóðfræði. Breytingarnar sem áttu sér nýverið stað innan HÍ verða einnig kynntar. Allir þjóðfræðinemar eru hvattir til að mæta.
Þegar Terry og Valdimar hafa lokið máli sínu tekur stjórn Þjóðbrókar við og kynnir viðburði vetrarins og bíður upp á kökur og kaffi. Auk þess verður kosinn nýnemafulltrúi og valið fólk í þorrablótsnefnd. Tilgangurinn með þessu kvöldi er einnig að nýnemarnir fái að sjá að þeir eru ekki einu þjóðfræðinemarnir heldur hluti af stórum og skemmtilegum hóp. Til að það takist þurfa að sjálfsögðu einhverjir eldri nemar að mæta líka.
Ef þú hefur hug á að mæta máttu endilega boða komu þína í kommentakerfinu svo við höfum einhverja hugmynd um hversu mikið við þurfum að baka.
Hæ hæ, ég kem! Verð samt ekki allan tíman, þarf að koma gríslingum í háttinn