Fundarboð v./ Laufskálaréttaferðar

Kæru Laufskálaréttaferðarfarar (ef þið getið búið til lengra orð í ferðinni fáið þið verðlaun!). Við ætlum að hittast á fimmtudaginn klukkan 13:15 undir stiganum á Háskólatorgi. Við munum þá fara yfir ferðatilhögun fyrir laugardaginn. Hlökkum til að sjá ykkur allar

Laufskálaréttir!!!!

Kæru Þjóðbrókarfélagar og þjóðfræðinemar. Við hyggjumst fara í menningarreysu norður í land þann 27.september til að vera viðstödd stóðréttir þar í sveit. Þennan ágæta laugardagsmorgun munum við leggja af stað klukka 8 til að vera mætt tímanlega. Eftir réttirnar er okkur boðið í einkar þjóðlega kjötsúpu að Hólum og svo munum við skunda í Hólakirkju [...]

Haustþing Þjóðfræðistofu

“Þjóðfræðistofa býður þjóðfræðinema sérstaklega velkomna á Haustþing, laugardaginn 13. september kl. 15:00, Höfðagötu 3 á Hólmavík, þar sem fræðasetrið verður kynnt fyrir áhugasömum. Þá mun Cliona O’Carroll flytja erindi um gerð þjóðfræðilegra útvarpsþátta en Cliona er lektor við Háskólann í Cork á Írlandi og situr í fagráði Þjóðfræðistofu. Þjóðfræðistofa er rannsóknarstofnun og fræðasetur sem starfrækt [...]

Nemendafundur/nýnemakvöld

Valdimar og Terry ætla að halda nemendafund miðvikudaginn 10 september kl. 17 í stofu 101 í Odda. Á fundinn mætir kennari frá Cork, Dr Cliona Ó Carroll, sem ætlar að segja frá Erasmus námi í Cork. Auk þess ætlar Valdimar að segja frá MA námi í Þjóðfræði. Breytingarnar sem áttu sér nýverið stað innan HÍ [...]

Langar þig á ball á föstudaginn?

Þjóðbrók ætlar að gefa heppnum þjóðfræðinemum tvo miða á Sálarballið á Brodway á föstudaginn. Það eina sem þú þarft að gera til að fá miða er að skrifa nafn, símanúmer og/eða netfang í kommentakerfið. Fyrstir koma fyrstir fá.