Dagskrá Stúdentadaga
Hér er dagskrá stúdentadaga. Ef þið hafið áhuga á að stofna fótbolta- og/eða gettu betur lið tjáið ykkur þá endilega um það í commentakerfinu.
Fimmtudagur 28. ágúst
DAGUR: 11:30-13:30 Nemendafélög í verkfræði- og náttúruvísindasviði og félagsvísindasviði kynna starfsemi sína á hæðinni f.neðan Háskólatorg.
Föstudagur 29. ágúst
DAGUR: 11:30-13:30 Nemendafélög á hugvísindasviði kynna starfsemi sína á hæðinni f.neðan Háskólatorg.
Þriðjudagur 2. september
DAGUR:
11:30-13:30 Nemendafélög á heilbrigðisvísindasviði kynna starfsemi sína á hæðinni f.neðan Háskólatorg.
12:15: Stúdentaráðsliðar ganga um háskólasvæðið með nýnema og gefa Akademíu. Gönguferðin hefst á Háskólatorgi.
Miðasala á stúdentasýningu SHÍ á kvikmyndina Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur á Háskólatorgi.
KVÖLD:
18:00 stúdentasýning á kvikmyndina Sveitabrúðkaupi í Háskólabíói. Leikarar spjalla við stúdenta HÍ að sýningu lokinni.
Miðvikudagur 3. september
DAGUR:
12:15: Stúdentaráðsliðar ganga um háskólasvæðið með nýnema og gefa Akademíu. Gönguferðin hefst á Háskólatorgi.
-FS-dagur á Háskólatorgi, jazz og huggulegheit.
-Háskóladansinn með atriði á Háskólatorginu.
Fimmtudagur 4. september – Stúdentadagar
DAGUR:
-13:00 fótboltakeppni milli deilda flautuð á á túninu fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Hægt er að skrá lið með póstsendingu á hah28@hi.is.
-13:00 spurningakeppnin Gettu Betur milli deilda dingluð á í ýmsum stofum háskólasvæðisins. Upplýsingar um stofur verða á www.student.is. Hægt er að skrá lið með póstsendingu á jmh3@hi.is.
-14:00 DJ Úthverfaprins og viskupaddan Steinþór Helgi Arnsteinsson spilar í tjaldi fyrir utan Háskólatorg. Tilboð í Hámu af guðaveigum frá kl. 14:00 og Atlantsolía úðar út fríkeypis pylsum.
-16:00-18:00 Hljómsveitin Hjaltalín spilar á Háskólatorgi í boði FS.
Föstudagur 5. september – Stúdentadagar
DAGUR:
-13:00 úrslit í Gettu Betur spurningakeppninni á Háskólatorgi.
-Háskóladansinn með atriði á Háskolatorgi.
-14:00 úrslit í fótboltamóti úti á túni fyrir framan Aðalbyggingu.
-14:00 góð stemning í boði DJ Úthverfaprinsins í tjaldi fyrir utan Háskólatorg, músík, pylsur og mjöður.
KVÖLD:
Háskólaball á Broadway – allar nánari upplýsingar síðar.
Discussion Area - Leave a Comment