Vísindavaka 2007

RANNÍS efnir til Vísindavöku – stefnumót við vísindafólk! sem haldin verður í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi kl. 17:00 til 21:00, föstudaginn 28. september.

Föstudagurinn 28. september 2007 er tileinkaður evrópsku vísindafólki. Af því tilefni verða haldnar ýmis konar Vísindavökur í yfir 30 borgum í Evrópu. Markmiðið með þessum atburðum að kynna fyrir almenningi fólkið á bak við rannsóknirnar – vísindafólkið sjálft og verk þess, draga fram mikilvægi rannsókna- og þróunar í nútímasamfélagi og beina sjónum ungs fólks að þeim möguleikum sem liggja í starfsframa í vísindum. Börn eru sérstaklega velkomin í Vísindaveröld Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sem verður með útibú á Vísindavökunni.

Á Vísindavökunni mun vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum kynna yfir 50 rannsóknarverkefni sem þeir vinna, þar á meðal þjóðfræðin við HÍ. Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknirnar, skoða hinar ýmsu afurðir rannsóknana og spjalla við vísindafólkið um starfið í vísindum og nýsköpun.

Fulltrúar frá Vísindahátíðinni í Perugia á Ítalíu munu heimsækja Vísindavöku og sýna StærðfræðiBolta og Ofurvísindi, hvernig vísindin virka í sögum um ofurhetjur.

Opið hús og allir velkomnir.

Discussion Area - Leave a Comment