Nýnemakvöld
Á morgun, fimmtudagskvöldið 6. september kl. 20 mun Þjóðbrók standa fyrir nýnemakvöldi í Odda 106. Boðið verður upp á mólk og köku eins og venjan er á nýnemakvöldum þjóðfræðinema. Nýnemar eru að sjálfsögðu sérstaklega boðnir velkomnir en eldri nemar einnig hvattir til að mæta, kynna sig og taka vel á móti hinum nýju!
Við bendum einnig á að skráning í nemendafélagið stendur yfir, félagsskírteinið kostar 2500.- og veitir frítt í allar vísindaferðir og á flesta atburði félagsstarfsins í vetur, auk annarra fríðinda. Hægt er að skrá sig með því að senda póst á thjodbrok@hi.is eða hafa upp á stjórnarmeðlimum (til dæmis á umræddu nýnemakvöldi!). Félagsgjaldið greiðist á reikning 137-26-17956, kt. 451089-1619.
Áður en nýnemakvöldið hefst fer fram aðalfundur Þjóðbrókar. Framboðsfrestur til embætta félagsins er nú útrunninn og bárust eftirfarandi framboð.
Stjórn
Formaður: Hjördís Pálsdóttir
Gjaldkeri: Þórunn Kjartansdóttir
Ritari: Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Nýnemafulltrúi er kosinn á nýnemakvöldi og er hægt að bjóða sig fram með því að senda póst á thjodbrok@hi.is
Skorarfulltrúar BA nema: Hjördís Pálsdóttir og Jóhanna Árnadóttir
Skorarfulltrúi MA nema: Eggert Sólberg Jónsson.
Enn á eftir að manna þorrablótsnefnd og ritstjórn Slæðings. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram er bent á að senda póst á thjodbrok@hi.is
Vonumst til að sjá sem flesta þjóðfræðinema, nýja sem og notaða.
Stjórnin
Discussion Area - Leave a Comment