Skýrsla stjórnar 2006-2007
Síðasti aðalfundur Þjóðbrókar var haldinn 5. apríl 2006. Þar tók við ný stjórn félagsins, Rósa Margrét Húnadóttir lét af störfum sem formaður, en Jóhanna Árnadóttir, nýnemafulltrúi fráfarandi stjórnar tók við. Íris Dögg Hauksdóttir hætti sem ritari og við tók Sigrún Ísleifsdóttir. Eggert Sólberg Jónsson hélt áfram störfum gjaldkera. Eggert og Rósa héldu áfram störfum sem skorarfulltrúar en við bættist í þann hóp Óli Gneisti Sóleyjarson sem kjörin var fyrir hönd MA nema. Á fundinum voru samþykkt ný lög félagsins sem fyrri stjórn hafði tekið þágildandi lög til gagngerrar endurskoðunar.
Að vanda var fyrsti atburður vetrarstarfsins var Nýnemakvöld. Að þessu sinni fór það fram í stofu 202 í Odda þann 7.september. Það var mjög vel sótt og bauð stjórnin að venju upp mjólk á súkkulaðiköku, sem að þessu sinni var í líki Gotlandssteins. Þar var sett í embætti nýnemafulltrúa Marie Spliid Clausen, sem var hér í skiptinámi frá Háskólanum í Árósum.
Ný og endurbætt heimasíða félagsins, www.thjodbrok.net var opnuð í byrjun október. Á henni var ýmislegt nýtt efni að finna, m.a. voru framan af vetri reglulega birtar kynningar á meðlimum félagsins, “Þjóðbrók vikunnar” og upplýsingar um sögu félagsins voru endurbættar. Auk þess býður síðan upp á meiri gagnvirkni en áður, á henni er virkt athugasemdakerfi, sameiginlegt blogg þjóðfræðinema og hægt er að birta greinar um þjóðfræðileg málefni.
Viku eftir keilukvöldið skipulagði Þjóðbrók í samvinnu við Kuml og nemendur í Inngangi að þjóðfræði ferð í Draugasetrið á Stokkseyri. Farið var með rútu og byrjað á að skoða Knarrarósvita. Þaðan er gott útsýni yfir brimgarðinn utan við Stokkseyri og Eyrarbakka. Síðan var Draugasetrið skoðað og í framhaldinu kíkt á uppsetningu nýrrar sýningar (sem síðan var opnuð í vor), en hún fjallar um álfa, tröll og norðurljós.
Í kringum Hrekkjavökuna í lok október var haldið búningapartý hjá Jóhönnu. Þar voru m.a. samankomin púki, dópisti, Skoti, köttur og Kleópatra. Nokkrum dögum síðar fór hópur þjóðfræðinema saman í bíó að sjá Mýrina.
Þjóðbrók var í töluverðu samstarfi við önnur nemendafélög þennan veturinn, einkum Kuml, félag fornleifafræðinema og Homo, félag mannfræðinema. Þann 3.nóvember var haldið sameiginlegt partý Þjóðbrókar og Homo, sem gekk undir nafninu Hombrók. Samkvæmið var haldið í Vökuheimilinu úti á Granda og sýndi fólk þar m.a. hæfni sína í Singstar auk þess sem keppt var í Pöbbquiz.
Viku eftir þetta partý fórum við í Hafnarfjarðarleikhúsið ásamt hópi guðfræðinema og sáum Gunnlaðarsögu, leikrit eftir Svövu Jakobsdóttur. Að leikritinu loknu stýrði Pétur Pétursson, prófessor í guðfræði umræðum um verkið þar sem áhorfendur fengu tækifæri til þess að ræða við aðstandendur sýningarinnar.
17. nóvember var aftur farin ferð í samstarfi við Kuml, í þetta sinn var það vísindaferð á Byggðasafn Hafnarfjarðar. Þar fékk hópurinn kynningu um fornleifaskráningu í Hafnarfirði og safnastarf þar. Eftir ferðina var haldið á Fjörukrána og síðan endað á Kaffibrennslunni.
Síðasti atburður haustannar voru Litlu jólin, sem haldin voru heima hjá Eggerti að jólaprófunum loknum. Þar var skipst á jólapökkum, drukkið jólaglögg og heitt súkkulaði og borðaðar smákökur með. Sú skemmtilega hefð virðist vera að skapast að fara í jólaglöggspöbbkviss á jólaglöggi Þjóðbrókar.
Vorönnin hófst með stæl. Áður en kennsla hófst var farið í bústað í Húsafelli. Á leiðinni þangað var stoppað á Pourquoi pas? sýningunni í Borgarnesi auk þess sem Sr. Geir Waage tók á móti hópnum í Reykholtskirkju og leiðsagði um hana og Snorrastofu. Að því loknu hófst leitin að bústaðnum, sem reyndist vel falinn í myrkri og snjó. Síðan var hafist handa við að afþýða heita pottinn, spila Trivial og teygja öl. Í þessari ferð var valinn nýr nýnemafulltrúi, Hjördís Pálsdóttir, þar sem Marie var farin aftur til Danmerkur.
Nokkrir þjóðfræðinemar sáu sér fært að mæta á videókvöld sem haldið var hjá Óla Gneista þann 26. janúar. Vegna dræmrar mætingar var hætt við að horfa á Blues Brothers, en í staðinn spilað.
Hið árlega þorrablót Þjóðbrókar var haldið með glæsibrag 2. febrúar í sal Matarsetursins á Grandagarði. Í þorrablótsnefnd þetta árið voru Sigrún Sigmarsdóttir, Selma Guðnadóttir og Elsa Ósk Alfreðsdóttir. Haldið var happdrætti með veglegum vinningum, farið í leiki, sungið og snæddur þjóðlegur þorramatur. Valdimar Tr. Hafstein lektor mælti fyrir minni kvenna, og Elsa Ósk fyrir minni karla.
Í febrúar gerðust þjóðfræðinemar íþróttamannslegir og skipulögðu vikulega íþróttatíma í íþróttahúsi háskólans. Þar var oftast spilað bandí en þó einnig gripið aðeins í fótbolta og körfubolta.
Enn var unnið í samstarfi við Kuml og farið í sameiginlega vísindaferð á Árbæjarsafn þann 16.febrúar. Þar tók á móti okkur sagnfræðingurinn Sigurlaugur Ingólfsson og sýndi okkur geymslur safnsins og pönk/diskó sýninguna. Eftir ferðina hélt stór hluti hópsins á Pravda og skemmti sér fram eftir nóttu. Aðrir fóru heim til Óla þar sem tekið var í nokkur spil.
Háskólakynningin var að þessu sinni haldin laugardaginn 17. febrúar í Háskólabíó. Skorarfulltrúar auk stjórnar sáu um kynninguna að venju og var hún vel heppnuð í ár. Fjölmargir komu við í básnum sem skar sig úr öðru básum félagsvísindadeildar. Hluti stjórnar hélt einnig til Keflavíkur og kynnti námið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í lok mars.
Á safnanótt, 23. febrúar, fóru þjóðfræðinemar saman út að borða á Eldsmiðjunni og tóku síðan góðan safnarúnt, farið var á Sögusafnið í Perlunni og því næst á Þjóðminjasafnið. Þjóðmenningarhúsið var heimsótt og þeir duglegustu enduðu síðan í Náttúruminjasafni Íslands. Eftir þetta var haldið í partý hjá Hjördísi nýnemafulltrúa.
2. mars var farið ásamt fornleifafræði- og guðfræðinemum í vísindaferð í Landsvirkjun. Þar fengum við fræðslu um starfsemi fyrirtækisins og hressilegar umræður spunnust að henni lokinni. Eftir ferðina hélt hluti hópsins á Glaumbar, þar sem Sigrún ritari var með afmælisveislu.
Önnur stór vísindaferð var farin í Framsóknarflokkinn ásamt fornleifafræði-, guðfræði-, sagnfræði- og mannfræðinemum þann 23.mars. Málefni flokksins í komandi kosningum voru þar rædd fram og aftur og síðan haldið í partý til Sigrúnar Hönnu.
Síðasta vísindaferð vetrarins var farin þann 30. mars á sögusýningu Landsbankans. Þar var boðið upp á dýrindis veitingar og Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur veitti ítarlega leiðsögn um sýninguna. Þessi ferð var farin ásamt sagnfræði- og fornleifafræðinemum. Eftir ferðina var haldið til Jóhönnu og endað í miðbænum. Fyrr þennan sama dag hafði verið haldið málþing til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni áttræðum.
Með þökk fyrir samstarfið í vetur.
Jóhanna Árnadóttir, formaður
Eggert Sólberg Jónsson, gjaldkeri
Sigrún Ísleifsdóttir, ritari
Hjördís Pálsdóttir, nýnemafulltrúi
Marie Spliid Clausen, nýnemafulltrúi
“ný og endurbætt”? annað hvort eru hlutir nýir, og þá óendurbættir, eða gamlir og endurbættir.
Ég var sko að skrifa þetta í grein hérna í þjóðfræðiútrásinni í USA.