Aðalfundur / Nýnemakvöld

Aðalfundur Þjóðbrókar, félags þjóðfræðinema verður haldinn í Odda (stofa auglýst síðar) fimmtudaginn 6. september kl. 20:00.

Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla fráfarandi formanns.
3. Skýrsla fráfarandi gjaldkera.
4. Ákvörðun árgjalda komandi starfsárs.
5. Lagabreytingar.
6. Kosningar til
… a) formanns
… b) gjaldkera
… c) ritara
… d) þriggja fulltrúa í þorrablótsnefnd
… e) ritstjóra Slæðings.
… f) tveggja skorarfulltrúa á BA stigi
… g) eins skorarfulltrúa á MA stigi.
7. Önnur mál. 

Auglýst er eftir framboðum til þeirra embætta sem kosið er um á aðalfundi. Framboðum og tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar á netfangið thjodbrok@hi.is í síðasta lagi föstudaginn 31. ágúst kl. 16:00. Kosningarétt og kjörgengi hafa allir þeir sem greitt hafa árgjald í félagið (á ekki við skorarfulltrúa og nemendafulltrúa þar sem allir skráðir nemendur í þjóðfræði eru kjörgengir og hafa kosningarétt).

Að loknum fundi tekur við nýnemakvöld þar sem fráfarandi stjórn býður upp á kökur og mjólk eins og venja er til.

Með kveðju,
stjórnin

2 Responses to “Aðalfundur / Nýnemakvöld”

  1. Vúhú….ég mæti

  2. Hey ég mæti líka. Ég verð nefnilega tótallí þjóðbrók í haust! (og flestir sem ég þekki kannski hættir/búnir/fluttir?)

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra