Þjóðfræðin slær í gegn
Posted on ágúst 27th, 2007 ritaði Eggert Sólberg
„Við áttum okkur ekki alveg á þessu. Kannski er þetta vegna þess að þjóðfræðingar hafa verið meira áberandi nýlega og eru að skila sér úr námi,” segir Valdimar Tr. Hafstein, lektor í þjóðfræði við Háskóla Íslands, um fjölgun nýskráninga í þjóðfræði.
Nýskráningum í BA-nám í þjóðfræði hefur fjölgað um 157 prósent og nýskráningum í MA-nám hefur fjölgað um 400 prósent frá því í fyrra.
„Þjóðfræðinga er að finna víða en þeir eru meðal annars blaðamenn, bændur, fararstjórar, safnstjórar, framkvæmdastjórar, hjálparstarfsmenn og prestar. En prestarnir eru að vísu ekki með þjóðfræðigráðuna eina.”
Þetta er megatöff. Pant vera þjóðbrókarmeðlimur í haust!