Brautskráning frá Háskóla Íslands
Í gær, þann 16. júní voru 300 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands, þar af þrír úr þjóðfræði. Rósa Margrét Húnadóttir, Sigrún Hanna Þorgrímsdóttir og Þorvaldur Þorbjörnsson útskrifuðust með B.A. próf. Óskum við þeim til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.