Ferð út í Viðey á laugardaginn

Þjóðbrók ætlar í útrás og laugardaginn og leggja Viðey undir sig. Örlygur Hálfdánarson sem fæddur er og uppalinn í eyjunni ætlar að taka á móti okkur og segja frá eyjunni, hvernig var að alast þar upp og fólkinu sem bjó þar. Þetta er einstakt tækifæri sem enginn ætti að missa af.

Mæting í ferjuna er klukkan 13:45. Gangan um eyjuna tekur um tvo tíma. Að henni lokinni ætlum við að grilla og hafa gaman saman. Mikilvægt er að klæða sig vel enda getur verið vindasamt í Viðey og munið að skilja pinnahælana eftir heima. Þjóðbrók greiðir ferðina niður og því kostar ekki nema 500 kr. fyrir félagsmenn og 1000 kr. fyrir aðra. Þeir sem vilja fara með verða að skrá sig fyrir hádegi á föstudag annað hvort með því að senda okkur póst á thjodbrok@hi.is eða í kommentakerfinu hér að neðan.

Ferðin er opin fyrir alla sem áhuga hafa, ekki bara núverandi nemendur.

One Response to “Ferð út í Viðey á laugardaginn”

  1. Mér þykir leitt að komast ei út í Viðey! Samviskan leyfir ekki heilan dag í skemmtun en ég er að fara í matarboð og jafnvel að maður kíki út á lífið eftir það, taki eins og eitt eða tvö dansspor. Það væri ekki úr vegi ef einhverjir þjóðfræðinemaplebbar færu út að skemmta sér að sjá þeirra fögru fés!!haaaa hvað segiði við því??

Discussion Area - Leave a Comment