Vegna Færeyjaferðar

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Færeyjaferðina. Ef einhver vill fara með sem gleymdi að skrá sig er viðkomandi beðinn um að senda okkur mail á thjodbrok@hi.is.

Í kjölfar forskráningarinnar í síðustu viku fengum við tvö tilboð í flug út. Lægra tilboðið er upp á 28 þús kr. Þar sem við verðum að staðfesta flugsætin fljótlega biðjum við þá sem ætla með út að greiða 5000 kr. staðfestingargjald inn á ferðareikning Þjóðbrókar (137-05-62996, kt. 451089-1619) í síðasta lagi fyrir 15:00 næsta þriðjudag auk þess að senda nafn og kennitölu á thodbrok@hi.is. Á fimmtudaginn í næstu viku verður haldinn fundur með þeim sem skráðu sig í ferðina.

ATH. Í tölvupósti sem sendur var út í dag var gefið upp vitlaust reikningsnúmer. Númerið hér að ofan er rétt.

One Response to “Vegna Færeyjaferðar”

  1. Sorry, alltaf allt að breytast hjá mér… komumst alls ekki með í ferðina :( því miður!

Discussion Area - Leave a Comment