,,sér hann þá alla hina þungu stóla, dreifða …”
Í sumar standa þjóðfræðinemum til boða tvær ferðir á fjöll.
A) ,,Laugavegurinn”
Vinsælasta gönguleið landsins og er án gríns sannkölluð landslagsveisla. Fyrst er gengið um litfögur líparítsvæði, síðan um svarta sanda milli grænna, mosavaxinna fjalla og að lokum er gengið um skógi vaxna og ilmandi Þórsmörkina. Gangan tekur fjóra daga og tekið skal fram að annan daginn er gist í skálanum við Álftavatn en þar hafa ýmsir þjóðfræðilegir atburðir átt sér stað, þriðja daginn er gengið fram hjá Hvanngili en í Ferðabók Eggerts og Bjarna segir að enginn ferðamaður ætti að hafa þar lengri viðdvöl en nauðsyn beri til vegna mikils reimleika. Þessi ferð verður farin 14. til 17. júlí og kostar kr. 30.000 innifalið; gisting og matur nema nesti fyrir fyrsta daginn, langferðabifreið í Landmannalaugar og úr Þórsmörk, farangur trússaður milli skála að ógleymdri fararstjórn.
B) Tveggja daga hjólaferð
Hjólað frá Laufafelli á Fjallabaksleið syðri að Álftavatni þar sem er gist og þaðan framhjá Hvanngili og áleiðis niður í Fljótshlíð. Þessi leið er ekki síðri landslagslega séð, en Laugavegurinn og gisting í Álftavatni er hverjum þjóðfræðinema með snefil af metnaði hrein nauðsyn. Þessi ferð verður farin 21. til 22. júlí. Verð verður ákveðið um það bil næstu daga en er cal 10 – 15.000. Innifalið, rúta sem fylgir hópnum, matur og gisting og hinn frábæra fararstjórn.
Lát heyra sem fyrst hvort þú hefur áhuga eða ekki. Ég get sent hverjum þeim sem hafa vill útbúnaðarlista og hafið óhikað samband er þið viljið vita eitthvað sem ekki kemur fram hér.
Kristín Einarsdóttir, kriste(hjá)hi.is
Discussion Area - Leave a Comment