Þjóðfræðisprikl
Posted on febrúar 14th, 2007 ritaði Eggert Sólberg
Sú frétt barst okkur til eyrna í síðustu viku að það væri bæði hollt og skemmtilegt að hreyfa sig reglulega. Í kjölfarið fórum við í íþróttahús HÍ og sömdum um leigu á íþróttasalnum þar á fimmtudögum kl. 13:00 það sem eftir lifir vetrar. Þessir tímar eru ætlaðir fyrir núverandi og fyrrverandi þjóðfræðinema og aðra velunnara þjóðfræðinnar til þess að sprikla. Í fyrsta tíma ætlum við að spila bandý og sjá síðan til hvernig fer. Vanir bandýspilarar mæla með því að fólk mæti í síðbuxum.
Discussion Area - Leave a Comment