Færeyjaferð
Eins og undanfarin ár verður boðið upp á tveggja eininga vettvangsferð erlendis í sumar. Að þessu sinni er ferðinni heitið á Ólafsvöku í Færeyjum. Ólafsvaka fer fram dagana 28. og 29. júlí. Líklegast er að flogið verði út 24. júlí og komið heim aftur þann 30. júlí. Þeir sem hafa áhuga á að fara með eru beðnir um að láta okkur vita í síðasta lagi föstudaginn 16. febrúar með því að senda póst á thjodbrok@hi.is eða skrá sig í kommentakerfið. Skráningin er ekki bindandi en við þurfum að vita u.þ.b. fjölda þeirra sem fara með til að geta byrjað að huga að gistingu og flugi (líklega er verð á flugi 20-30 þús.).
Allir eru velkomnir með en til þess að geta unnið verkefni í tengslum við ferðina þarf viðkomandi að hafa lokið 30 einingum í þjóðfræði.
hæ hæ þið megið reikna með mér
Ég og maðurinn minn ætlum að gera allt sem við getum til að komast með…
En bara af því að Þórunn ætlar að fara :þ
Vúhú ætti maður að gera eitthvað villt og skella sér til eyja hinna færu (eða eitthvað). Ég held barasta að ég skelli mér með….er eiginlega orðin dáldið spennt!
Sæl
Ég mun að öllum líkindum fara með ef menn vilja hafa mig hehe.
Ég ætla að fylla upp í verkefnið sem ég var síðast með 2005. og drekka svolítið meira af Föreyjabjór.