Afmæli: Jóna Hildur Sigurðardóttir

Jóna Hildur Sigurðardóttir verður 22 ára þann 27. mars nk.

Vegna Færeyjaferðar

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Færeyjaferðina. Ef einhver vill fara með sem gleymdi að skrá sig er viðkomandi beðinn um að senda okkur mail á thjodbrok@hi.is. Í kjölfar forskráningarinnar í síðustu viku fengum við tvö tilboð í flug út. Lægra tilboðið er upp á 28 þús kr. Þar sem við [...]

Safnanótt og partý

Í tilefni af safnanótt ætlum við að hittast og djamma saman. Við byrjum á því að borða saman á Eldsmiðjunni kl. 18. Síðan verður stefnan tekin á safnarúnt, hugmyndin er að skoða Þjóðminjasafnið, Landnámssýninguna 871 +/- 2 og Sögusýninguna í Perlunni. Að lokum verður svo haldið í partý til Hjördísar í Gnoðarvogi 58. Þeir sem ætla að borða með [...]

Nýjar og nýlegar myndir

Á myndasíðunni okkar má m.a. finna myndir frá þorrablótinu, bústaðaferð, vísindaferð á Árbæjarsafn og Háskóladeginum.

,,sér hann þá alla hina þungu stóla, dreifða …”

Í sumar standa þjóðfræðinemum til boða tvær ferðir á fjöll. A) ,,Laugavegurinn” Vinsælasta gönguleið landsins og er án gríns sannkölluð landslagsveisla. Fyrst er gengið um litfögur líparítsvæði, síðan um svarta sanda milli grænna, mosavaxinna fjalla og að lokum er gengið um skógi vaxna og ilmandi Þórsmörkina. Gangan tekur fjóra daga og tekið skal fram að [...]

Þjóðfræðisprikl

Sú frétt barst okkur til eyrna í síðustu viku að það væri bæði hollt og skemmtilegt að hreyfa sig reglulega. Í kjölfarið fórum við í íþróttahús HÍ og sömdum um leigu á íþróttasalnum þar á fimmtudögum kl. 13:00 það sem eftir lifir vetrar. Þessir tímar eru ætlaðir fyrir núverandi og fyrrverandi þjóðfræðinema og aðra velunnara [...]

Vísindaferð á Árbæjarsafn – Skráning stendur yfir!

Starfsmenn Árbæjarsafns ætla að taka á móti okkur kl. 18 næstkomandi föstudag og kynna okkur safnið. Við gerum ráð fyrir að hver og einn komi sér sjálfur á staðinn. Safnið mun ekki bjóða upp á veitingar en okkur er frjálst að koma með eigin veigar. Athugið að takmarkaður fjöldi kemst með í þessa ferð. Þjóðbrók [...]

Færeyjaferð

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á tveggja eininga vettvangsferð erlendis í sumar. Að þessu sinni er ferðinni heitið á Ólafsvöku í Færeyjum. Ólafsvaka fer fram dagana 28. og 29. júlí. Líklegast er að flogið verði út 24. júlí og komið heim aftur þann 30. júlí. Þeir sem hafa áhuga á að fara með [...]