Þorrablót – Miðasala

Nú er vika í þorrablótið mikla og því um að gera að fara að huga að dressi og öðrum þáttum undirbúningar. Blótið verður haldið, eins og áður var auglýst, föstudaginn 2. febrúar í sal Matarsetursins að Grandagarði 8.

Miðaverð eru með þrennum hætti í ár:
Meðlimir Þjóðbrókar 3600 kr.
Utanfélagsmenn 4100 kr.
Allir sem koma eftir borðhald 1000 kr.

Miðasala verður á 2. hæð í Odda á eftirfarandi tímasetningum:
- Miðvikudaginn 31. janúar kl. 13.30-17.00
- Fimmtudaginn 1. febrúar kl. 12.00-15.30

Þeir sem ekki komast á þessum tíma til að kaupa miða geta haft samband við Sigrúnu Sigmars á e-mail: sigruna@hi.is eða í síma 849-9932 og ákveðið annað.

Að lokum hvetjum við sem flesta að láta sjá sig á þorrablótinu og endilega að taka með sér gesti. Ef þið vitið um einhverja sem eru ekki á póstlista Þjóðbrókar en hafa áhuga á að koma, endilega látið boðið ganga.

Með bestu kveðju,
Þorrablótsnefnd

Discussion Area - Leave a Comment