Þjóðbrók vikunnar #16
Hér kemur síðasta þjóðbrókin á þessu ári.
Nafn? Valdimar Tryggvi Hafstein
Hvaðan kemur nafnið? Frá öfum tveimur og þangað lengra aftan úr ættum. Hafstein segir sagan að sé upphaflega viðurnefni sem færeyskur skipbrotsmaður fékk eftir að hann bjargaðist úr sjávarháska þar sem aðrir bátsmenn fórust og “flaut” langa leið um opið haf áður en hann rak loksins að landi.
Hvenær komstu í heiminn? 12. október 1972
Uppeldisstöðvar? Reykjavík, Brussel (nunnuskóli, úff), Reykjavík, Genf, Reykjavík
Af hverju þjóðfræði? Lítið fag með stórt hjarta (hugsið ykkur bara hvað það er mikið betra en hið gagnstæða)
Stendur til að læra eitthvað meira? Já já
Hvað ertu búin að kenna lengi? Síðan 2000 við Háskólann, en var bara að byrja í fullu starfi.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Þjóðfræðin er þríein. Eða er hún þríhöfða þurs? Alla vega, einn fyrir alla og allir fyrir einn og allt það.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Steiktar fiskibollur með bráðnu smjöri og soðnum kartöflum, nammi namm.
Hvað verður í jólamatinn? Æi, ætli það verði ekki eitthvað reykt.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Veit nú ekki hvort það er beint skemmtilegt, en ég fangi í viðjum vanans, afskaplega rútíneraður náungi. Til að mynda drekk ég sams konar kaffi á hverjum morgni við sama borðið á sama kaffihúsinu. Eðalkaffi, reyndar.
Uppáhalds staður? Ekki frá því að það sé Washington Square Park í New York.
Pylsa eða pulsa? Já takk.
Eitthvað að lokum? Amen.
Discussion Area - Leave a Comment