Þjóðbrók vikunnar #15

…og fleiri kennarar mæta til yfirheyrslu.

Nafn? Terry Gunnell
Hvaðan kemur nafnið? Nafnið Terence Adrian kemur líklega frá pabba, sem fannst að ég ætti annaðhvort að vera leikari (Terence), eða hárgreiðslumaður (Adrian).
Hvenær komstu í heiminn? 7 júli 1955
Uppeldisstöðvar? Brighton and ‘ove… Þá Birmingham.
Af hverju þjóðfræði? Af hverju ekki?
Stendur til að læra eitthvað meira? Maður er sífellt að læra (- og gleyma, þegar maður er kominn á sextugs aldri, og er einnig orðinn afi.)
Hvað ertu búin að kenna lengi? Var framhaldsskólakennari frá 1978-1998; stundakennari í HÍ (almenn bókmenntafræði og þjóðfræði 1993-1998); lektor í þjóðfræði 1998:
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Allt…
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Við vorum að flýta okkur: kjúklingamánar með hvítlauksósti… og hrísgrjón (einhver gleymdi að kaupa kartöflur).
Hvað verður í jólamatinn? Svínakóteletur á la tengdó… og Christmas pudding (hjá okkur einhvern tíma).
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? kennsla
Uppáhalds staður? Balestrand í Norge; heima hjá mér; The Royal Oak pub í Sussex, Englandi; The Whisky Society, Leith, Edinborg.
Pylsa eða pulsa? Cumberland sausages
Eitthvað að lokum? Skemmtileg áritun á leggsteininum.

Discussion Area - Leave a Comment