Þjóðbrók vikunnar #14
Áfram höldum við að yfirheyra kennarana.
Nafn? Aðalheiður Guðmundsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Frá aðalpersónu samnefndrar sögulegrar skáldsögu eftir C. Davies
Hvenær komstu í heiminn? Þann 7. mars 1965
Uppeldisstöðvar? Fyrstu sex árin ólst ég upp á Innra-Leiti á Skógarströnd, en eftir það í Hafnarfirði (þar af nokkur ár á Straumi – hvíta og rauða burstabænum sem allir keyra fram hjá á leiðinni til Keflavíkur).
Af hverju þjóðfræði? Besta leiðin til að koma auga á samhengi hlutanna. Hjálpar til við að skilja heiminn.
Stendur til að læra eitthvað meira? Er þegar komin með efstu prófgráðu, en skóli lífsins er líklega ævilangur.
Hvað ertu búin að kenna lengi? Í íslenskunni frá 1995, en þjóðfræði frá c. 2000.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Fyrst og fremst þjóðsagnafræðin, myndi ég segja, en þjóðlífið er líka heillandi rannsóknarefni.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Grænmetisbuff með sætum kartöflum og salati.
Hvað verður í jólamatinn? Forréttur (ekki búin að ákveða hann), hamborgarhryggur og möndlugrautur. Annars á ég blendnar minningar í sambandi við jólagrautinn, því ég fékk alltaf möndluna og systkini mín voru heldur pirruð á þessu á aðfangadagskvöld. Nú er ég farin að læða möndlunni til krakkanna minna. Ótrúlegt.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Marga skrítna, held ég, allavega hlær fjölskylda mín að ýmsu sem ég geri. Hef alltaf haft ótrúlega mikið hugmyndaflug og er alltaf eitthvað að bauka.
Uppáhalds staður? Heillast af Skandinavíu, sérstaklega Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Geng reglulega um skóginn í Undirhlíðum í Heiðmörk, sem er eiginlega „staðurinn minn“. Líður annars vel heima.
Pylsa eða pulsa? „Ein góð pylsa er alltaf ein góð pylsa“. Setning sem ég og krakkarnir mínir fórum oft með eftir forstöðukonu elliheimilsins í sögunni um Emil í Kattholti. Frábært atriði.
Eitthvað að lokum? Ég var að ljúka við að lesa ritgerðirnar í þjóðsagnafræðinni – miklir snillingar, þessir „krakkar“.
Discussion Area - Leave a Comment