Þjóðbrók vikunnar #13
Í desember sitja flestir nemendur sveittir við prófaundirbúning en það er nauðsynlegt að taka smá pásur af og til. Í desember verða nokkrir kennarar þjóðbrækur vikunnar. Þannig hjálpa þeir okkur að finna eitthvað til að skoða þegar einbeitingarskorturinn hrjáir nemendur þeirra.
Nafn? Kristín Einarsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? skírð eftir móðursystur minni sem dó af barnsförum rúmlega tvitug – (afskaplega sorglegt og olli mér hugarangri fram eftir aldri)
Hvenær komstu í heiminn? 31. dag maímánaðar 1952
Uppeldisstöðvar? sveitabær við Langá í Borgarhreppi í Mýrarsýslu.
Af hverju þjóðfræði? Ögmundur Helgason sagði mér að þar ætti ég heima og ég hlýddi því og blessuð sé minning hans.
Stendur til að læra eitthvað meira? Er alltaf að læra eitthvað meira.
Hvað ertu búin að kenna lengi? Ég byrjaði að kenna Innganginn haustið 1999 og ætla að kenna Innganginn þangað til mér verður hent út úr stofnuninni og inn á Grund.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Bara allt
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Það skal ég segja þér með ánægju af því það er svo sjaldan eldað hér á þessu eymdarheimili. Í gær var steiktur lax, með fiskikryddi bæði frá Pottagöldrum og Knorr (blandað til helminga) borið fram með saladi og kartöflum. Þetta er annar af tveimur réttum sem ég kann að elda, hinn rétturinn er steiktur silungur á sama máta.
Hvað verður í jólamatinn? Kalkúnn, sem ég elda reyndar líka, ég fer að halda að ég sé fyrirmyndarkokkur.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Já, örugglega en man bara þessa leiðinlegu.
Uppáhalds staður? Álftavatn, Hattfell, Fjallbak nyrðra …
Pylsa eða pulsa? Fer eftir því hvort ég er að fá mér pulsu með einhverjum málfarsfasistum eða ekki.
Eitthvað að lokum? Hlakka mjög mikið til að lesa þessi svör frá öðrum kennurum.
Discussion Area - Leave a Comment