Orðsending frá skorarfulltrúm
Kæri þjóðfræðinemi.
Eins og þú hefur líklega tekið eftir þá stendur nú yfir kennslukönnun á Uglunni. Við hvetjum þig til þess að taka þátt með það að markmiði að bæta kennsluna í þjóðfræðinni. Við getum fullvissað þig um að tekið er mark á niðurstöðum kennslukannana. Skorarfulltrúar hafa rétt á því að sjá niðurstöðurnar óski þeir þess og geta þannig fylgt þeim eftir. Vinna við útfyllinguna er því ekki unnin til einskis.
Við viljum líka hvetja þig til að ljúka skráningu í námsskeið á vorönn 2007 sem fyrst. Nokkuð hefur borið á því að nemendur ljúki ekki skráningu fyrr en eftir áramót og eru ýmsir ókostir sem fylgja því fyrirkomulagi.
Með kveðju frá skorarfulltrúunum þínum,
Eggert, Óli og Rósa.
Discussion Area - Leave a Comment