Þjóðbrók vikunnar #12
Nafn? Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Ingibjörg er frá ömmu minni og Hanna frá systur hennar
Hvenær komstu í heiminn? 25. nóvember 1984, 2 mínútur fyrir miðnættið. Mamma og ljósmóðirin voru ekki sammála um tímasetninguna því mamma leit á klukkuna rétt eftir að ég fæddist en ljósmóðirin þegar hún var eitthvað búin að stússast með mig. Þannig að mamma mátti ráða hvort ég hefði fæðst 25 eða 26!
Uppeldisstöðvar? Hólabak í Austur- Húnavatnssýslu
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2004
Af hverju þjóðfræði? Jeminn, einhvurra hluta vegna æxlaðist það þannig. Byrjaði reyndar í íslensku en þó fylgdi hjartað þjóðfræðinni alla önnina, veit samt ekki af hverju mér datt það í hug upphaflega.
Hvar ertu stödd í náminu? Kýs að segja mig vera á 2.ári en er í rauninni á 2. önn.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Ég snýst eins og laufblað í vindi varðandi það, held þó núna að þjóðlífs sé nr. 1, þjóðsagna nr. 2 og þjóðháttafræðin nr. 3. Líst semsagt best á þjóðlífið.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Ég fékk afgang síðan á sunnudaginn, það samanstóð af lambi í rjómasósu einhverri, mjög gott.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Ég striplast iðulega fyrir framan herbergisgluggann, nágrönnum mínum til yndisauka.
Uppáhalds staður? Þar sem hamingjan ríkir og ég get dansað
Pylsa eða pulsa? Pylsa- Ég byrjaði ekki í íslensku fyrir ekki neitt!
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? Það mun vera í nýju íbúðinni minni sem ég flyt í um næstu helgi, Bólstaðarhlíð 33, kjallari. Öllum velkomið að koma í heimsókn hvenær sem er. Og ég meina það!
Hvað á að gera eftir BA? Draumurinn er að vinna sér inn smá pening í nokkra mánuði. Fara svo út til Ítalíu og lifa lífinu, læra málið almennilega og njóta Ítalíu og Ítalanna. Eftir það væri gaman að fara í framhaldsnám í Bretlandi en það er algjörlega óljóst hvað það yrði. En svo veit maður aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.
Eitthvað að lokum? Ást til allra…
Discussion Area - Leave a Comment