Þjóðbrók vikunnar #11

bryndisb.jpg

Nafn? Bryndís Björgvinsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Pabba fannst töff að láta mig heita einhverju nafni sem byrjar á -B, hann er svo mikið fyrir höfuðstafi og stuðla.
Hvenær komstu í heiminn? Um klukkan 07:20 24. mars 1982.
Uppeldisstöðvar? Hafnarfjörður City!
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Ég var í MH á árunum 1998-2002.
Af hverju þjóðfræði? Það var helber tilviljun. Ég var í Sagnfræði og ætlaði að velja mér aukafag og varð Landfræði fyrir valinu. Hún var ágæt þangað til að kennarinn sagði okkur að mæta með reiknivél í tíma, þá sagði ég bara “Hingað og ekki lengra” og hætti í faginu. Þá ákvað ég að kíkja til Kristínar Einars í Inngang að Þjóðfræði og mér líkaði strax svo vel við efnið og stemmninguna að ég endaði í MA námi í faginu. Ég lofa nú þann dag er ég kynntist Þjóðfræðinni!
Hvar ertu stödd í náminu? Á Fyrstu önn í MA
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Jafnvíg á öllum vígstöðum!
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Íslenskur kjúklingur í tælensku gervi.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Æ, nei… ég veit þó um ekkert fallegra en nýfædd lömb og liggur alltaf við gráti þegar ég sé þau, held samt að það sé meira furðuleg viðbrögð en skemmtilegur ávani. Jú svo stundum, sérstaklega þegar ég er stressuð, þá fæ ég hrikalega ljótan kæk, en það er ekki heldur skemmtilegur ávani. Pass.
Uppáhalds staður? Næfurholt, sveitabærinn sem ég var á í mörg sumur og er næsti bær við Heklu, þar er sko massa mikið af lömbum. Hafnarfjörður fær líka að vera með, en annars finnst mér svona oftast bara fínt að vera það sem maður er hverju sinni.
Pylsa eða pulsa? Það er “pulla”.
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? á Íslandi.
Hvað á að gera eftir MA? Bara sitjast yfir öll tilboðin sem ég á eftir að fá og vingsa svona út það sem er áhugaverðast og best borgað, kaupa hús, bimma og land undir lömbin mín. …ekki gleyma síðan að vera raunsæ! Er þetta ekki það sem er í boði..eða?
Eitthvað að lokum? Já, ég vona að félagslífið sé afbragð og dauðskammast mín fyrir að mæta aldrei neitt… svo hlakka ég til að sjá nýja Slæðing, hvenær kemur hann?

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra