Leikhúsferð
Þjóðfræðinemum býðst tækifæri til að sjá Gunnlaðar sögu í Hafnarfjarðarleikhúsinu á mjög góðum kjörum. Eftir sýninguna verða umræður um myndmál, goðsögur o. fl. við leikstjórann og leikara. Við auglýsum verð og hvar hægt er að nálgast miða á allra næstu dögum.
Gunnlaðar saga fjallar um unga, íslenska stúlku, Dís, sem handtekin er í Kaupmannahöfn fyrir tilraun til ráns á gullkeri úr þjóðminjasafni Dana. Móðir stúlkunnar heldur utan til að fá dóttur sína lausa en dregst inn í óvænta og spennandi atburðarás sem gerist bæði í Kaupmannahöfn samtímans og að því er virðist í hugarheimi, skáldskap Dísar. Skáldskapur verður að veruleika og veruleiki að skáldskap og fyrr en varir er móðirin stödd í hringiðu goðsögunnar um Gunnlöðu sem gætir Skáldskaparmjaðarins.
Discussion Area - Leave a Comment