Þjóðbrók vikunnar #10

Sigrún á afmæli í dag. Við óskum henni til hamingju með daginn.

sigrunsigmars.jpg

Nafn? Mér var gefið nafnið Sigrún Sigmarsdóttir og var skírð það líka :P
Hvaðan kemur nafnið? Ég er skírð í höfuðið á frænku minni. Mamma ákvað strax að hún myndi skíra eftir henni, og þegar þriðja stelpan hennar fæddist þá sagði hún: Jæja, þá er Sigrún komin, og þá er ég hætt.
Hvenær komstu í heiminn? ég fæddist á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 23. október á því herrans ári 1983, kl. 21.09.
Uppeldisstöðvar? Ég flutti í Hvassaleitið sama ár og Kringlan var opnuð og, þrátt fyrir þrálátt bann móður minnar, var sú bygging helsti leikvöllur fram eftir öllu. Þegar gelgjan náði hámarki var ég dregin í sveita og látin dúsa í Grafarvoginum.
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf?
Verzlunarskóli Íslands á þann heiður að hafa útskrifað mig í maí 2003, af stærðfræðibraut.
Af hverju þjóðfræði?
Af hverju ekki?! Mér skilst að ég sé gömul sál, og hef fengið að heyra að langamma mín, sem lést örfáum dögum áður en ég fæddist, fylgi mér í gegnum þetta allt saman.
Hvar ertu stödd í náminu? Mér hefur alltaf verið vel við málsháttinn, þetta kemur með kalda vatninu, og hefur hann fylgt mér síðastliðin 3 ár í þjóðfræðinni. En ætli ég láti ekki 4 ár duga í þetta og útskrifist næsta vor (7, 9, 13).
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði?
Eiginlega beggja blands, þó undanfarið hef ég verið meira að hallast að þjóðháttafræðinni með áherslu á því gamla í nútímanum.
Hvað var í kvöldmatinn í gær?
Kvöldmaturinn í gær var í fljótlegri kantinum, heimatilbúnir kjúklingaborgarar með helling af grænmeti og BBQ sósu.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana?
nei, en fullt af leiðinlegum.
Uppáhalds staður?
ætli ég verði ekki að velja þann týpíska kost, rúmið. Það er sérstaklega gott að kúra þegar það er rigning úti og maður heyrir í henni dynja á rúðunni.
Pylsa eða pulsa?
fer eftir hvaða skapi ég er í ;)
Hvar er líklegast að finna þig í vetur?
Á þjóðarbókhlöðunni að vinna eða heima að læra.
Hvað á að gera eftir BA?
kemur í ljós
Eitthvað að lokum?
Welcome to the real world, It sucks! You’re gonna love it.

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra