Málþing um kanadíska frumbyggja- og landnemamenningu
Málþing um kanadíska frumbyggja- og landnemamenningu verður haldið í Salnum í Kópavogi laugardaginn 21. október kl. 10-13 á Kanadískri menningarhátíð. Þar verður fjallað um menningu frumbyggja og landnema í Kanada og samskipti þeirra í fjölda áhugaverðra erinda, sjá viðhengda dagskrá. Málþingið er haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna. Frummælendur eru Viðar Hreinsson, Gísli Pálsson, Björk Bjarnadóttir, Garðar Baldvinsson, Gísli Sigurðsson og Ásta Sól Kristjánsdóttir og fundarstjóri Salvör Nordal. Nánari upplýsingar í viðhengdri dagskrá. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á salurinn@salurinn.is eða í síma 5 700 400.
Nánari upplýsingar um aðra dagskrá Kanadískrar menningarhátíðar á www.kopavogur.is
Discussion Area - Leave a Comment