Ný heimasíða Þjóðbrókar

Velkomin á nýja heimasíðu Þjóðbrókar.

Á nýju síðunni er margt í boði sem ekki var í boði á þeirri gömlu, t.d. er núna hægt að setja inn athugasemdir við fréttir og tilkynningar og fljótlega verður hægt að gera það sama með myndir. Búið er að setja upp spjallborð þar sem allir geta tekið þátt í umræðum um þjóðfræði og þjóðfræðinema.

Þjóðfræðinemabloggið er enn ein nýjungin. Slóðin á það er www.thjodbrok.net/blogg. Þar geta allir sem á einhvern hátt eru tengdir þjóðfræði sett inn tilkynningar og færslur. Hægt er að skrá sig á síðunni www.thjodbrok.net/blogg/wp-admin og þá verður ykkur fljótlega gefin réttindi til að skrifa á bloggið.

Sögusíðan okkar hefur líka verið uppfærð. Þar eru komin inn gömul rit sem Þjóðbrók hefur gefið út og upplýsingar um eldri stjórnir. Tómas V. Albertsson þjóðfræðinemi hefur lagt til efni úr sínum geymslum til þess að birta á vefnum.

Með von um að þið verðið dugleg við að nota heimasíðuna í vetur.
Stjórn Þjóðbrókar.

One Response to “Ný heimasíða Þjóðbrókar”

  1. Grúví! Frábært framtak, mikið er ég spennt:)

Discussion Area - Leave a Comment