Ferð í Reykholt og sumarbústað
Þá er komið að því að við ætlum að leggja land undir fót, helgina 14.-15.október.
Lagt verður af stað frá Reykjavík um kl. 14, laugardaginn 14.október. Gert er ráð fyrir að fólk verði á einkabílum og er hugmyndin að safnast saman við Borgarnes. Þaðan verðum við samferða upp í Reykholt þar sem við munum fá leiðsögn um staðinn. Að því loknu verður ekið upp í Húsafell, en þar höfum við tekið á leigu sumarbústað og ætlum að skemmta okkur saman fram eftir kvöldi. Heimferð er síðan áætluð einhvern tímann á sunnudeginum.
Endilega tilkynnið þáttöku sem fyrst (nóg að senda svarbréf á þennan póst eða á thjodbrok@hi.is) og gott væri líka að vita hverjir geta verið á bíl, svo hægt sé að redda þeim fari sem bíllausir eru. Frítt er í ferðina fyrir félagsmenn Þjóðbrókar en kostar kr. 500.- fyrir aðra.
Discussion Area - Leave a Comment