Þjóðbrók vikunnar #7

Nafn? Þórunn Kjartansdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Ömmu systir mín átti að heita Þórunn en presturinn vildi ekki skíra hana svona ókristilegu nafni, þannig að hún var látin heita Kristólína. Ég heiti því óbeint í höfuðið á hennni.
Hvenær komstu í heiminn? Rétt fyrir kaffið 2 júní 1983
Uppeldisstöðvar? alla tíð hef ég búið í Nýjubúð í Eyrarsveit
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? vor 2003 frá FVA
Af hverju þjóðfræði? æi Lukka var í því!!! gat fengið bækurnar hennar
Hvar ertu stödd í náminu? var bara að byrja
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? veit ekki held samt Þjóðháttafræði
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Samloka með osti og skinku + melóna
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Nei held ekki!!!
Uppáhalds staður? Heima undir sæng
Pylsa eða pulsa? Pulsa hitt er bara snobb!!
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? vonandi einhverstaðar að læra.
Hvað á að gera eftir BA? gifta mig, eignast 10 börn og verða heima vinnandi….. nei veit ekki best að klára bara eitt í einu.
Eitthvað að lokum? Þegar ég verð búin að laga til heima hjá mér skal ég bjóða í partý!!
Discussion Area - Leave a Comment