Þjóðbrók vikunnar #6
Fyrsti mastersneminn sem kynntur er hér er líka helmingur ritstjórnar Slæðings.

Nafn? Óli Gneisti Sóleyjarson
Hvaðan kemur nafnið? Ég heiti Óli í höfuðið á móðurbróður mínum og Gneisti af því að það er flott.
Hvenær komstu í heiminn? 4. febrúar 1979
Uppeldisstöðvar? Fæddur og bjó á Akureyri þar til sumarið 2001.
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Þó ég hafi tekið flesta áfanga mína í Menntaskólanum á Akureyri þá útskrifaðist ég úr Verkmenntaskólanum á Akureyri. Það gerði ég 21. desember 2002, líklega með Rósu fyrrverandi formanni Þjóðbrókar.
Af hverju þjóðfræði? Af því að þjóðfræðibásinn var við hlið bókasafns- og upplýsingafræðibásins á Háskólakynningu. Ég hef alltaf haft áhuga á ýmsu í sambandi við þjóðfræði, flökkusögur, hjátrú og margt fleira. En ég endaði hérna alveg óvart.
Hvar ertu staddur/stödd í náminu? Ég er á fyrstu önn í MA-námi mínu.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Stefnan er að drepa þessa þrískiptingu sem ég hef aldrei verið hrifinn af. Mastersritgerðin mín fellur undir munnlega hefð en ég hef áhuga á fjölmörgu öðru.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Í gær var ég einn að elda fyrir mig þannig að það var samloka með osti og hakki (sem var afgangur frá fyrri kvöldverði).
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Ja, mér þykir skemmtilegt að taka myndir þó sumum öðrum finnist skemmtangildi þess takmarkað.
Uppáhalds staður? Væntanlega sófinn sem ég sit í en ég er alltaf hrifinn af því að hanga á Háskólasvæðinu.
Pylsa eða pulsa? Pylsa hiklaust, ég kann að tala. Fæ kjánahroll þegar ég heyri fólk í auglýsingum segja “pulsa sig”.
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? Í sófanum mínum lesandi. Annars þá reyni ég að hanga svoltið í Odda.
Hvað á að gera eftir MA? Ja, eftir að ég var í MA fór ég í VMA og síðan… eða áttu við Mastersnámið? Væntanlega tek ég kennsluréttindi þannig að ég geti verið bókasafns- og upplýsingafræðingur, þjóðfræðingur og kennari. Hugsanlega gælir maður við hugmyndina um frekara nám.
Eitthvað að lokum? Reynið að vera sæt þegar ég tek mynd af ykkur.
Discussion Area - Leave a Comment