Þjóðbrók vikunnar #5

Skorararfulltrúinn og fyrrum formaðurinn er næsta Þjóðbrók vikunnar.

Rosa

Nafn? Rósa Margrét Húnadóttir
Hvaðan kemur nafnið? Ég heiti Rósa í höfuðið á móðurömmu minni og Margrét í höfuðið á föðurömmu minni, ekki mjög frumlegt það!
Hvenær komstu í heiminn? 29. Október 1982 og er því sporðdreki skv. hinni hefðbundnu stjörnuspeki en hundur skv. hinni kínversku.
Uppeldisstöðvar? ég ólst upp eins og blóm í eggi í hinni fögru Eyjafjarðarsveit, nánar tiltekið á Litla-Hamri
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? frá Verkmennntaskólanum á Akureyri 20. desember 2002
Af hverju þjóðfræði? af því að það á vel við mig!
Hvar ertu stödd í náminu? Ég er á þriðja ári og ætla mér að útskrifast í vor
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Þegar ég var barn heillaðist ég mest að þjóðsagnafræðinni en núna er ég hrifnari af þjóðlífs- og þjóðháttafræði, get ekki gert upp á milli.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Ég var í mat á Borðeyri í gær þar sem boðið var upp á saltkjöt, franskar kartöflur, tómatsósu, kjúkling, soðnar kartöflur og sveppasósu!
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Sérkennilegur talsmáti (norðlenska)sem vekur stundum upp hlátur viðstaddra…
Uppáhalds staður? Í faðmi fjölskyldu og vina
Pylsa eða pulsa? Auðvitað pylsa!
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? Á meðal safngripa á Þjóðminjasafni Íslands ;)
Hvað á að gera eftir BA? Það er enn óráðið þó að það styttist óðum í prófið
Eitthvað að lokum? ég óska nýrri stjórn góðs gengis á komandi vetri og hlakka til að fylgjast með starfinu í vetur

Discussion Area - Leave a Comment