Þjóðbrók vikunnar #4

Gjaldkeri Þjóðbrókar slapp ekki við yfirheyrsluherbergið þrátt fyrir að allar undankomuleiðir hafi verið kannaðar.

Eggert

Nafn? Eggert Sólberg Jónsson
Hvaðan kemur nafnið? Ber nöfn afa minna.
Hvenær komstu í heiminn? 17. desember 1984, kl. 9:30.
Uppeldisstöðvar? Alinn upp í hinu fagra Borgarnesi.
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Var hleypt út úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi rétt fyrir jólin 2003.
Af hverju þjóðfræði? Hef alltaf haft áhuga á því samfélagi sem við lifum í og hvernig það hefur þróast í gegn um tíðina. Í þjóðfræðinni má finna margt sem ég hef áhuga á og vil kanna nánar. Upphaflega fór ég samt að skoða þjóðfræðina eftir að hafa lesið Snorra Eddu í fjölbraut.
Hvar ertu staddur í náminu? Er á 3. ári. Klára vonandi í vor.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Ágætt að blanda þessu saman. Allt tengt goðsögum og trúarlífi finnst mér mjög spennandi svo og gamla bændasamfélagið.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Í gær eldaði ég mér hjartapottrétt.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Alveg örugglega, einn þeirra er kannski hvað ég er hryllilega vanafastur.
Uppáhalds staður? Rúmið er líklega klassískasta svarið en þar sem ég hrífst alltaf af nýjum stöðum þá á ég örugglega eftir að finna minn uppáhalds stað.
Pylsa eða pulsa? Pylsa með tómat, sinnepi, remúlaði, steiktum og ananas.
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? Það er ekki ólíklegt að mig megi finna í Odda, Árnagarði eða á Bókhlöðunni.
Hvað á að gera eftir BA? Læra meira og meira þangað til ég veit allt um ekki neitt.
Eitthvað að lokum? Nei, held að það sé óþarfi.

Discussion Area - Leave a Comment