Þjóðbrók vikunnar #2

Ritari Þjóðbrókar og helmingur ritstjórnar Slæðings þurfti eins og aðrir í stjórninni að svara beinskeittum spurningum Þjóðbrókarvefsins. Hún stendur í ströngu þessa dagana því von er á nýjum Slæðing á þessu ári ef allt gengur að óskum.

Sigrun

Nafn? Sigrún Ísleifsdóttir
Hvaðan kemur nafnið? Ég heiti í höfuðið á móðurömmu minni, við erum alnöfnur. Það er allt svo stutta útgáfan af langri sögu og mikilli dramatík sem hófst á því að ég reyndist ekki vera strákur og endaði á því að foreldrar mínir komust ekki af með að eignast færri en fimm börn.
Hvenær komstu í heiminn? Klukkan 05:11 að morgni annars mars 1985.
Uppeldisstöðvar? Ætli ég verði ekki að segja Kópvogurinn, bjó þar frá því að ég var þriggja ára og þar til fyrir tveimur árum.
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Kláraði MH vorið 2005.
Af hverju þjóðfræði? Jah, það er stóra spurningin. Þetta var bara eitthvað sem hitti í mark, sameinaði allt sem ég hafði áhuga á að læra og meira til og ég held að það sé alveg öruggt að ég sé ekkert á förum héðan!
Hvar ertu stödd í náminu? Ég var að hefja annað árið mitt í haust.
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Svona sambland af þjóðlífs- og þjóðsagnafræði, er minnst spennt fyrir þjóðháttafræðinni. Hef mikinn áhuga á öllu sem tengist tónlist og dansi, trúariðkun, hátíðahöldum, goðafræði, fornsögum og þjóðsögum, leikjum og félagsmenningu. Það er eiginlega úr allt of mörgu skemmtilegu að velja til að maður geti takmarkað sig við eitthvað eitt…
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Pastasalat með skinku og grænmeti sem ég eldaði alveg sjálf!
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Skemmtilega, tjah… á maður sér ekki alltaf mun fleiri slæma ávana? Ég segi reyndar alltaf “miðnótt” í staðinn fyrir miðnætti, sem sumum vinum mínum finnst af einhverjum ástæðum mjög fyndið. Og svo er ég háð msn-brosköllum.
Uppáhalds staður? Veistu, ég held ég hafi bara ekki fundið hann ennþá.
Pylsa eða pulsa? Pylsa. Eða þ.e.a.s. ég myndi aldrei skrifa “pulsa”, þori þó ekki að sverja fyrir að það brenglist ekki stundum í framburði.
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? Á Háskólasvæðinu! Ef öll plön ganga eftir verð ég líkast til föst þar meira og minna…
Hvað á að gera eftir BA? Bara… halda áfram er það ekki?! Það eru ákveðin MA prógrömm í erlendum háskólum sem mig langar að kynna mér nánar, þó að það sé kannski of snemmt að ákveða neitt í þeim málum ennþá. Svo langar mig líka einhvern daginn að halda áfram með organistanámið og læra meiri söng, fá leiðsögumannaréttindi og læra fleiri tungumál… Síðan er fullt af spennandi rannsóknarefnum í þjóðfræði sem bíða eftir manni þannig að það er af nógu að taka.
Eitthvað að lokum? Jah, er ég ekki bara búin að blaðra nóg í bili ;)

Discussion Area - Leave a Comment




Viagra | Adderall | Viagra Online | Levitra | Free Viagra | Cheap Viagra