Þjóðbrók vikunnar #1

Við ætlum okkur að sjálfsögðu að halda því áfram í vetur og gera eitthvað nýtt og spennandi hér á vefnum. Ein af þeim nýjungum eru yfirheyrslur sem birtast munu hér reglulega í vetur. Fyrst til að sitja undir svörum er formaður vor en á næstunni verður kastljósinu beint að öðrum embættismönnum í stjórnkerfi Þjóðbrókar.

Johanna

Nafn?
Jóhanna Árnadóttir
Hvaðan kemur nafnið? Jóhanna frá ömmu minni og fóstru mömmu og Árnadóttir af því að pabbi hét Árni og ég er stelpa :)
Hvenær komstu í heiminn?
11.desember 1984
Uppeldisstöðvar? Keflavík city, bær óttans.
Hvenær og hvaðan tókstu stúdentspróf? Fjölbrautaskóla Suðurnesja vor 2004
Af hverju þjóðfræði? Af því að þjóðfræði er kúl.
Hvar ertu stödd í náminu? Að byrja 2. ár
Þjóðlífs-, þjóðsagna- eða þjóðháttafræði? Held ég verði að segja þjóðhátta.
Hvað var í kvöldmatinn í gær? Mög gott svínakjöt sem Helga og Hildur vinkonur mínar matreiddu.
Áttu þér einhverja skemmtilega ávana? Ég á það til að bresta í söng, veit samt ekki hvort að það sé eitthvað skemmtilegt fyrir aðra en mig…
Uppáhalds staður? Suður Ameríka er góður staður en líka Paddy´s og rúmið mitt,
Pylsa eða pulsa? Pulsa
Hvar er líklegast að finna þig í vetur? Ef ég er ekki heima eða í vinnunni þá er ég líklegast í Odda
Hvað á að gera eftir BA? Verða frægur og ríkur þjóðfræðingur.
Eitthvað að lokum? “Does this puffin taste like chicken?”

Discussion Area - Leave a Comment