Fyrsta vika vormisseris..

Í tilefni af fyrstu viku annarinnar munum við í Þjóðbrók bardúsa margt og mikið og vonum við að þið komið og gerið ykkur glaðan dag með okkur, hvort sem þið eruð gamlir nemendur, nýnemar eða fjarnemar..

Á miðvikudagsmorgun verður sameiginlegur morgunverður hjá fjarnemum og kennurum kl.8:30 í Gimli 102. Við hvetjum alla til að koma með morgunmat handa sér og máski eitthvað til að deila líka.

Á miðvikudaginn klukkan 16:00 í Odda 101 verður fundur um þjóðfræðinámið þar sem nemendur geta spurt og komið með hugleiðingar til kennara og samnemenda. Við hvetjum alla til að koma og hlusta eða leggja sitt til málanna svo skapist góðar umræður. Hvort sem það er um námið, félagslífið, dreifingu námskeiða, BA nám, mastersnámið eða hvað sem ykkur dettur í hug er gott að koma og ræða málin við kennara og samnemendur.

Á fimmtudaginn ætlum við að skella okkur á nýjasta safnið í bænum, hið Íslenska reðasafn. Þar mun Hjörtur taka vel á móti okkur og munum við skoða safnið hátt og lágt, en í safninu er einmitt þjóðfræðideild sem gaman er fyrir okkur að skoða og velta fyrir okkur.
Við fáum 50% afslátt á miðaverði og kostar miðinn 500 krónur. Mæting er á reðasafnið kl.15:10.

Á föstudaginn verður síðan nýnemastuð Þjóðbrókar sem hefst kl.20:00.. Staðsetning verður auglýst síðar í vikunni.

Við vonum að þið mætið sem flest á eitthvað af þessum viðburðum og hlökkum til að hitta ykkur eftir jólafríið!!

Stjórn Þjóðbrókar.

Jólakózý Þjóðbrókar

Samkvæmt hefð sem byrjaði í fyrra skulum við hittast í síðustu kennsluvikunni, spjalla og hafa það notalegt áður en prófbrjálæðið skellur á. Við ætlum að hittast klukkan 16:00 í kaffistofunni á Odda Á ÞRIÐJU HÆÐ á fimmtudaginn og í boði verður kakó, kaffi, piparkökur og aðrar góðar jólakökur (ekki loftkökur samt)

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga notalega stund saman!

Stjórn Þjóðbrókar

Þjóðbrók í sal á Skemmtiþættinum HA?

Nú ætlar Þjóðbrók að láta ljós sitt skína og sýna fram á að við kunnum að hlæja og skemmta okkur í áhorfendasal. Við ætlum að mæta á upptöku á skemmtiþættinum HA? sem er á Skjá einum á fimmtudaginn 17.nóvember. Mæting er klukkan 17:30 og það eru drykkir í boði fyrir upptöku sem er kl.18:00 og er um klukkustund. Eftir þáttinn fá svo allir mánaðaráskrift að Skjá Einum þannig að þið farið ekki tómhent heim!! Ef stemning er fyrir þá skundum við eftir þáttinn á ölstofu eða veitingastað til að spjalla…

Til að geta sent inn fjölda þá megið þið endilega svara mjög samviskulega hérna fyrir neðan eða á facebook viðburðinum:  http://www.facebook.com/event.php?eid=219021541502889

Halloween partý og Gróttuferð

Elsku brækur!

Við ætlum að skunda á Halloween partý á morgun með fjórum öðrum nemendafélögum: Fróða, Homo, Curator og Kuml. Partýið verður á Norðurpólnum sem er úti á Seltjarnarnesi og það verður geðveikt! Við hvetjum alla til að mæta í búningum því það verður keppni og það væri geggjað ef að ein Þjóðbrókin myndi vinna. :) Hver kemur með sitt áfengi en Þjóðbrók verður með skot og eitthvað geggjað gott fyrir sitt fólk. Hlökkum til að sjá ykkur öll!!

Síðan ætlum við að fara út í Gróttu í næstu viku, á föstudaginn 4.nóvember. Mæting á Snoppu (hjá Gróttu) er klukkan 20:00 og við leggjum af stað yfir kl.20:10.

Í Gróttu verður síðan smá kvöldvaka með úrvals draugasögum frá Kristínu og skemmtilegu spjalli og leikjum.

- Ef einhverjum dettur í hug einhverjir leikir eða einhverjar draugasögur til að segja um kvöldið/nóttina mega þeir endilega láta okkur í  stjórninni vita.

- Það eiga allir að koma með eitthvað til að setja á kvöldsnarlshlaðborð. :)

- Þeir sem vilja fá sér eitthvað áfengt mæta með það sjálfir.

- Þjóðbrók býður upp á morgunmat kl. 09:00 daginn eftir. Við komumst yfir í land aftur kl.09:30.

Það sem fólk þarf að koma með með sér:

- Vasaljós og Vaselín

- Svefnpoka

- Nasl á kvöldhlaðborðið

- Ýkt góða skapið

- Hlý föt/náttföt

- Tannbursta og tannkrem

Skráningin verður eins og í draugaferðina, þeir sem borga eru skráðir. Það kostar aðeins 1000 krónur og þið leggjið hann inn á okkur og sendið skýringuna “Grótta” til hrk10@hi.is. Það eru 40 sæti í boði og 10 síðustu þurfa að koma með dýnu með sér! :)

Reikningsnúmerið er:

0137-26-017956

kennitalan 451089-1619

og skýringin “Grótta” til hrk10@hi.is
Hlökkum til að sjá ykkur rýjurnar mínar!

Heimsókn Þjóðbrókar til Félags Hinsegin stúdenta

Jæjajá! Eigum við ekki að skunda í heimsókn til hinsegin stúdenta og eiga með þeim huggulega kvöldstund?
Jú, það held ég nú! Þar fáum við að njóta veitinga af einhverju tagi, skemmtunar og fræðslu um starfsemina. Þau hljóta jú að luma á einhverju fyrsta flokks þjóðfræðiefni! Þetta verður öldungis indælt og áhugavert!

Fríir hattar!!! :D

Samt ekki.

Endilega látið vita hvort þið ætlið að koma, annaðhvort hérna í athugasemdum eða á viðburðinum á facebook:

http://www.facebook.com/event.php?eid=265228760183948

Til þeirra sem fara í Draugaferðina!

Jæææjjjaa, þá er allt komið á hreint fyrir Draugaferðina miklu..

- Við erum búin að ákveða að hafa samlokur fyrir ykkur í rútunni, svona til að seðja hungrið aðeins.. Það er samt allt í lagi að koma með smá nesti ef þið verðið fljótt glorhungruð :)

- Þið sjáið um ykkar drykkjarföng sjálf. Það er leyfilegt að drekka í rútunni, en við verðum að muna að ganga vel um og taka allar dósir og hella ekki niður ;) Það er líka leyfilegt að koma með sitt eigið áfengi þar sem við borðum og við verðum þar í dágóða stund.. Þannig að þið metið endilega það sem þið þurfið :)

Mæting er kl. 14:50 fyrir neðan Odda. Við förum kl.15:00/15:10. Þannig að þeir sem eru i skólanum verða að vera tilbúin þar.

Við hlökkum alveg hrikalega til.. Shjitturinn titturinn hvað þetta verður gaman!

Draugaferð Þjóðbrókar 29.september!!

Það er komið af því!

Haustferð Þjóðbrókar verður með draugaívafi þetta haustið… Við munum fara á vit drauga um suðurlandið með leiðsögn Bjarna Harðar, þjóðfræðingi og mun Kristín Einarsdóttir vera með til að leiðrétta hann.

Við leggjum af stað klukkan 15:00 frá Odda (þannig að þeir sem eru i skólanum verða tilbúnir strax eftir tíma) og förum þaðan í rútu um Flóann í draugaleiðsögn. Eftir það kíkjum við á Draugasetrið, við fáum okkur síðan að borða á Eyrabakka ( hjá tengdaföður nýnemafulltrúans sem ætlar að GEFA okkur mat!) og verðum komin heim um 23:00 sama kvöld.

Þessi herlegheit kosta aðeins kr.3000 fyrir Þjóðbrókarmeðlimi en kr.4000 fyrir hinn almenna borgara. Allir eru velkomnir með en aðeins 40 sæti eru í boði!! Vinsamlegast skráið ykkur samviskusamlega á viðburðinn á facebook:http://www.facebook.com/event.php?eid=150528048373105  og með því að borga gjaldið eigi síðar en á sunnudaginn 25.september.

Kt. 451089-1619
Rkn. 0137 – 26- 017956
og hafið endilega “draugaferð” í skýringu.

Hlökkum enn og aftur til að sjá ykkur sem allra flest!!

Stjórn Þjóðbrókar

Jenny Butler talar um skiptinám til Írlands

Sælt veri fólkið,

Á morgun klukkan 17:00 mun Jenny Butler fjalla um skiptinám við Cork og um doktorsritgerðina sína í Odda 206.

Jenny Butler er þjóðfræðingur við þjóðfræðideild háskólans í Cork á Írlandi þar sem hún vinnur að doktorsritgerð sinni um írska galdra og nýheiðni (Irish Witchcraft and Neo-Paganism). Hún vinnur einnig að rannsóknum á álfasögum (fairy folklore) sem séu svipaðar á Írlandi og á Nýfundnalandi í Kanada. Jenny hefur frá árinu 2002 flutt erindi um galdra og nýheiðni á ýmsum ráðstefnum.

Hún ætlar að hitta þá nemendur sem hafa áhuga á skiptinámi við Cork og fræða okkur um áherslurnar sem eru í þeim skóla. Einnig ætlar hún að spjalla við okkur um doktorsritgerð sína um írska galdra og nýheiðni.

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á skiptinámi að láta sjá sig!

Fjölskyldudagur Þjóðbrókar og Félags þjóðfræðinga

Nú ætla Þjóðbrók og Félag Þjóðfræðinga að leiða saman hesta sína og eiga huggulega stund saman. Því blásum við til fjölskyldudags þar sem við viljum sjá öll fallegu þjóðfræðibörn og maka sem eru þarna úti. Við ætlum að hittast á stað sem verður auglýstur þegar nær dregur og borða saman pylsur, drekka svala og fara í nokkra leiki saman. Börn, makar, vinir og vandamenn eru hjartanlega velkomin og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest!
Fjölskyldudagurinn verður haldinn fimmtudaginn 22.september kl.17:00 – 19:00 :)

Fréttatilkynning – Þjóðbrók fer að heiman!

Opnun þjóðfræðisíðu á hlaðvarpi RÚV og frumsýning stuttmyndarinnar: “Hvað er þjóðfræði?”

Fimmtudag. 8 sept. kl. 17, á Háskólatorgi stofu 101. Mættum öll!

Nú eru rúm tíu ár liðin frá því að nemendum í þjóðfræði við Háskóla Íslands bauðst að vinna stutta útvarpsþætti í góðri samvinnu við starfsfólk Ríkisútvarpsins. Tveir þjóðfræðinemar fengu í sumar það verkefni að safna þáttunum saman til að hægt væri að hlusta á þá í hlaðvarpi útvarpsins. Efnið er eins og gefur að skilja fjölbreytt og forvitnilegt enda um það bil 150 þættir sem unnir hafa verið.

Fimmtudaginn 8. september ætlum við hér í námsbraut í þjóðfræði að kynna þetta verkefni og opna formlega fyrir aðgang að þáttunum á hlaðvarpi RÚV.

Eftir það munu Björk Holm og Ólafur Ingibergsson kynna og sýna nýja stuttmynd þeirra, “Hvað er þjóðfræði?” sem verður sett m. a. á vefsíðu Þjóðfræða.

Bestu kveðjur,

Terry, Valdimar, Aðalheiður og Kristín